Jóladagatlið 2. des


Jóladagatlið 2. des from Atli Vidar on Vimeo.

Hér fyrir neðan munu Arnórs og Margrétstöl bætast við þegar og ef þau bætast við.

Arnór Bogason -

2. desember from Arnor Bogason on Vimeo.

Maggretmokk-

Jólamokk - 2. des from mokkinn on Vimeo.
|

Jóladagatlið 1. des


Jóladagatlið 1. des from Atli Vidar on Vimeo.

Þá hafa fyrstu þrjú jóladagatölin í Jóladagatalaþríleik Margrétar, Atla og Arnórs litið dagsins ljós. Hér fyrir ofan má sjá framlag mitt.

Hér er Arnór -

1. desember from Arnor Bogason on Vimeo.

Og hér er Margrét -

Jólamokk - 1. des from mokkinn on Vimeo.

Jóladagatal morgundagsins mun vera ákaflega... háfleygt!
|

Facebook

Picture 19
|

Vantar þig að leigja?

Hakan vinur minn er að leigja út íbúðina sína með a) öllu innbúi og b) geeeeðveikt skemmtilegum nágrönnum. 55.000 kall á mánuði, internet, rafmagn og hiti innifalið. Og hússjóður. 40 fm á Frakkastíg 19. Gott stöff. Sendið meil á halimhakandurak hjá gmail.com ef yður vantar heimili.
|

Atli hvar ertu...?

Báðum lesendum þessarar síðu hefur áreiðanlega þótt ákveðinn hlut vanta síðastliðnar vikur. Þar eð nýja hluti. Upplýsingar. Hvað er að ske? Ég hef ákveðið að lýsa Asíuferðinni í söng eins og Atli stakk upp á í kommentum hér fyrir neðan, svo það þarf að bíða aðeins lengur eftir söngleiknum "Atli og Erna í Asíu" en hann verður geðveikur.

En! Ég gerði soldið töff! Ég bjó til aðra heimasíðu, þessa hér - tékkaðu á henni. Hún er geðveik. Hún er tileinkuð sportinu sem ég er farinn að stunda villt og galið, longboard. Eða langbretti. Hvort hljómar eðlilegra?
Ég kláraði meira segja myndband þar sem ég, Raggi, Svenni, Orri og nýjir vinir okkar þeir Chris og Bragi skemmtum okkur konunglega með bretti föst við lappirnar á okkur.

Undanfarið hef ég verið að spila í nokkuð mörgum brúðkaupum, svo ég ákvað að setja link hér á síðuna, svo fólk sem vantar plötusnúð geti haft samband við mig. Mér finnst ægilega gaman að spila í brúðkaupum. Það er allt öðruvísi en að dídjeiast í miðbænum, í stað asans og ofbeldisins löðrar allt í ást og ákveðinni upphafinni hamingju sem er rosalega gaman að vera partur af. Það að geta tekið þátt í hamingju einhvers á þennan hátt, einhvers sem maður þekkir ekki baun, er ótrúlega merkileg upplifun sem er ákveðinn heiður að mínu mati að upplifa. Spurning samt um að passa sig á að enda ekki eins og gaurinn í Wedding Singer...

Ég setti líka inn tvö myndbönd, svona til að setja meira kjöt á beinið. Maður má ekki gleyma sjálfum sér.
|