Vancouver Film School

Í Vancouver leynist kvikmyndaskóli sem ég held að hljóti að vera draumur flestra teiknimyndagerðar/kvikmyndagerðar/grafíklista -manna. Verkefni nemenda eru iðullega sett á youtube af starfsfólki skólans og leit á youtube að vfs gefur undantekningarlaust stórskemmtilegar útkomur.

Ég bendi til að mynda á þessa hér -


Tvær og hálf mínúta, einföld saga en grípur vel.

Svo er þetta hér grafíkrúnk af allt öðrum meiði -


Ég þekki einn Íslending sem hefur farið í VFS, og sá vinnur hjá Rúv. Ætli hann sé að fá laun hjá rúv í samræmi við skólann sem hann útskrifaðist úr?
|

Varstu búinn að sjá...

Þetta?



Og hér má sjá það sama, nema ekki í sökkí youtube gæðum. Ég mæli með því að ekki sé notaður sökkíjútjúbgæða linkurinn, en valfrelsið blívur.
|