Netstuldur
Lærilæri
04/05/08 02:04
Ég er enn í prófum, en klára á mánudaginn með prófi í
kvikmyndasögu.
Í dag horfði ég á Reiðhjólaþjófanna eftir Vittorio De Sica frá 1948, frábær neórealísk mynd fyrir alla fjölskylduna. Svo striplaðist Brigitte Bardot um skjáinn minn í 110 mínútur í Le Mépris eftir Godart. Ég skil ekki hvað fólk er alltaf að þvaðra um að það sé leiðinlegt að læra undir próf í háskólanum.
Lærdómstónlistin hefur hingað til verið heildarsafn Portishead, þar með talið B-hliðarplatan Melody Nelson og nýja platan Third, og svo hef ég verið að rifja upp gömul kynnið við Add n to (x) og FIla Brazillia. Hlustaði líka aftur á 10.000 hertz eftir Air, hún er ekki jafn leiðinleg og mig minnti. Síðan en ekki síst hef ég sankað að mér helstu lögum Pharcyde og Wu-Tang í instrumental útgáfum, nokkuð sem ég mæli verulega með.
Droppa hérna fjórum lögum sem ég hef sérstaklega haft gaman af í þessari prófatörn -
02 - Hunter Portishead - Hunter (af Third [2008])
02-NY Electric _ Cowboys Aesop Rock og Portishead - NY Electric (Cowboys) af plötunni Rockhead [2007]).
02 The New Cannonball Fila Brazillia - The New Cannonball (af plötunni Power Clown [1998])
13-the_pharcyde-runnin-c4 The Pharcyde - Runnin' (af plötunni instrumentals [2005])
Stolið frá Little-Gamers.

|