mynd
Internetsins besta mynd.
15/05/08 00:40
Þetta myndi vera eini opinberi flutningur lagsins ,,Passíusálmur Númer 53" af hljómsveit sem ég man því miður ekki lengur hvað heitir. Frá vinstri; Íklæddur mexíkönsku ullarponsjó með rastafari hatt á hausnum er Steingrímur Karl Teague, þáverandi söngvari rokkpönksveitarinnar Eszet. Síðan kemur Atli Viðar Þorsteinsson, ráðvilltur busalingur, ber að ofan en í regnkápu af móður sinni. Aftastur á sviði er síðan Ragnar Pétursson, sem meðal annars lék með sveitinni Tai Chi í denn í Tónabæ, en hann leikur á flunkunýjan Yamaha DJ-X. Óðríkur Algaula 1999, er virkilega svona langt síðan?
|
