© 2009 AtliVidar Vinnustöðvastríð. Staða í ágúst.

Atli og Stokkhólmur — 1. hluti

Núna eru kom­nir ríflega 2 mánuðir síðan ég lenti í Stokkhólmi og hóf nám við Hyper Island sem Inter­ac­tive Art Direc­tor. Til að vera nákvæ­mari þá reyn­dar lenti ég á Kas­trup í Dan­mörku og tók X2000 lestina hin­gað til Stokkhólms því að það var 15.000 kalli ódýrara en að fljúga beint (gott að hafa í huga fyrir þá sem hyg­gja á heimsóknir).

5. ágúst lenti ég og skólinn hófst þann 6. ágúst. Fyrstu tvær vikurnar voru alger­lega tileinkaðar því að hrista saman hópinn. Við erum rúm­lega 50 nemen­dur í deildinni minni og eftir þessar vikur held ég að fle­stir hafi þekkst með nafni, vitað nafn fyrsta elskhuga téðs ein­stak­lings og hvað hann borðar í morgun­mat dags­da­glega. Það er mikið gagn­sæi í Hyper Island. Það eru tvær aðrar deildir innan skólans hér í Stokkhólmi, Project Man­age­ment og síðan Dig­i­tal Media, sem skip­tist í annars vegar útskrif­tarne­men­dur 2010 og 2011. Í heil­d­ina telst mér til að við séum ca 150 nemen­dur í skólanum, og skólinn sjál­fur skip­tist í tvö stór rými. Nemen­durnir, allir með tölu, sitja í stórum sal, hver með sitt eigið borð eða “work­sta­tion” og yndisle­gan skrif­borðstól. Ég er í óopin­beru work­sta­tion stríði við bekk­jar­félaga minn Filip Hammarnas.

Vinnustöðvastríð. Staða í ágúst.

Vin­nustöð­vas­tríð. Staða í ágúst.

Eins og sést þá hal­lar sol­dið á mig þarna. En ég er að vinna í því, þetta er staðan í ágúst. Myn­dir af stöðunni í dag koma bráðum.

Fyrstu vikurnar hér í Stokkhólmi bjó ég heima hjá vinum mínum Katrínu og Antoni í úthverfi Stokkhólms, Bromma. Að finna íbúð í Stokkhólmi er ógeðslega erfitt, en með hjálp góðs fólks og vina þeirra fann ég íbúð á stú­den­taíbúðunum við Lapp­kars­ber­get. Íbúðin er rúm­lega 80 fm, sem þykir vera höll á stokkhólm­skum skala. Ég bý með tveimur öðrum, annars vegar norskum bekk­jar­félaga mínum að nafni Alexan­der Strand og hins vegar þýskri konu sem fram­leiðir tón­lis­tarmyn­d­bönd. Mjög hip og kúl allt saman.

Ég þarf að halda áfram að læra núna, erum að vinna verkefni fyrir Ikea sem þarf að skila eftir tvær vikur, svo ég slútta þessu með rúsínu í pyl­suen­dann. Núna á fös­tudaginn síðastliðinn fes­tumst við Alexan­der í 45 mínú­tur í neðan­jarðar­lestinni með líf­skún­st­ner­num Per Olaf, en hann ætlar sér að verða geim­fari á næsta ári. Alexan­der Strand and Pero The Astro­naut. Spjal­lið er mest­meg­nis á sæn­sku, en með enskum útskýringum.

Post a Comment

Your email is never published nor shared. Required fields are marked *

*
*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>